
Skýringa á lélegri þátttöku í mótmælunum í gær er að leita í tvennu:
1. Það er stutt liðið frá mánaðarmótum og fólk er ekki búið að ná sér upp úr gjalddagaþunglyndinu - sem að sönnu er orðið viðvarandi ástand á mörgum heimilum.
2. Fólk sem er í vinnu, þorir ekki fyrir sitt litla líf að bregða sér frá vegna hættu á uppsögn eða hreinlega gjaldþroti fyrirtækisins ef starfsmennirnir eru ekki í boð-lífróðri!
Gylfi Arnbjörnsson náði ekki að hreinsa þykkjuna, sem ég el í brjósti mér gagnvart honum og ASÍ - þrátt fyrir að hann gerði sér far um að dingla fætinum alþýðlega, þar sem hann sat á hjólhestinum sínum upp við styttuna af Jóni Sigurðssyni.
Auk þess er flest fólk feimið við að lenda í skotlínu fjölmiðlafólks - sem í gær töldust maður á hvern mótmælanda þar til klukkan var stundarfjórðung gengin í tvö.
Það eru helst þeir sem farnir eru að taka inn við ástandinu sem fást til að opna munninn....
og innlegg í grillumræðuna:
Það er greinilegt að stjórnvöld ætla sér að varpa þeim sem verst eru staddir á gljáfægð grill góðærisins. Þ.e. þau fáu sem ekki eru orðin helköld!